Sjálfvirk kaffivél fyrir Nespresso® hylki. Hægt er að velja um espresso, cafe lungo (stóran espresso), latte, cappuccino, macchiato og svo er hægt að stýra hversu stóran kaffibolla þú vilt fá úr einu hylki ef stærðirnar sem eru í boði henta þér ekki. Vélin er með svokallað One-Touch / High Speed Cappuccino ef fólk vill nýta þann möguleika. Vélin er hugsuð fyrir ca 40 bolla á dag og hefur rusladall fyrir 40 notuð hylki. Hún er með stóran vatnstank, 4 lítra og 2,5ltr dropabakka. Stærð: 28cm x 38cm x 48cm (Breidd x hæð x dýpt)