• Sjálfvirk kakó og kaffivél. Þrýstir á einn hnapp og færð ljúffengt kakó eða kaffi beint í bollann. Hægt er að velja um mismunandi styrkleika á kaffinu. Bolero er fyrir frostþurrkað kakó og kaffi. Hægt er að fá heitt soðið vatn úr vélinni. Beintengja þarf vélina við vatnslögn. Vélin hefur 3,4l. vatnstank 30l á klst. 9 sek. á bolla Hæð: 57,2cm - Breidd: 24,5cm, - Dýpt: 40cm
  • Gaggia Concetto Cappuccino er ein flottasta og vandaðasta vélin frá Saeco/Gaggia. Þessi vél er notuð á mjög mörgum kaffihúsum með góðum árangri. Endingarmikil og notendavæn vél. Vélin flóar mjólkina sjálf og er með sjálfhreinsiútbúnað þannig að viðhald er lítið. Hún er með stóra korgskúffu og 2,1kg baunahólf. Getur gert tvo bolla í einu og er með 9 valmöguleika. Gefur bæði heitt vatn og svo mjólkurblandaða drykki eins og kaffi latte og cappuccino. Topp vél fyrir kröfuharða. Vélin beintengist við vatn og niðurfall. stærð :527 x 540 x 673mm
  • Kaffistöð fyrir tvo hitabrúsa. Litur: svartur. Í kaffistöðinni eru hólf sem hægt er að geyma hrærur, sykur,mjólk o.fl. Sérútbúin hólf fyrir einnota mál. Einstaklega snyrtileg og handhæg lausn fyrir þá sem vilja hafa kaffiaðstöðuna í topp lagi.
  • Hitabrúsavél. Vélin er með dælu sem tryggir lágmarks hitatap við notkun. Kaffið helst sérstaklega heitt og ferskt klukkutímum saman. Hægt er að beintengja vélina við vatnslögn eða hella vatni beint á vélina. Afkastageta er 18L á klst. Tekur um 7 mín. að hella uppá 2,2l (einn brúsa) Hæð: 54,7cm - Breidd: 20,5cm, - Dýpt: 35,5cm
  • B20 vélin er tilvalin fyrir mikið annríki eins og sjúkrahús og staði þar sem þarf að afgreiða mikið kaffi á örskömmum tíma. Hún getur afgreitt 40 ltr í einu og dælt í gegnum sig 90ltr/klst. Hún er 14 mínútur með hvorn 20ltr kútinn fyrir sig. þessi vél er líka með heitavatnskrana og getur afkastað 20ltr/klst af heitu vatni. Kútana er hægt að færa frá vélinni. Rúmmál:1257x592x888mm Ath vélin notar 3ja fasa tengingu.
  • Sjálfvirk espresso kaffivél. Þú þrýstir á einn hnapp og færð nýmalað kaffi beint í bollann. Hægt er að velja um mismunandi styrkleika á kaffinu. Á vélinni er sjálfvirkur flóunarstútur. Hægt er að fá heitt vatn úr vélinni. Vélin hefur 2,2l. vatnstank sem lyft er af með einu handtaki. Hæð: 40cm – Breidd: 30cm, – Dýpt: 40cm Ath. engin skuldbinding um lágmarkskaup á kaffi en kaffið er verslað hjá Kerfi.
  • Þessi vél hefur 4 hólf og hefur möguleika á að gera 9 mismunandi drykki t.d , kaffi Creme, Espresso, Cappuccino, súkkulaði, kaffi með mjólk, kaffi latte , Mocha kaffi, tvöfaldan espresso og heitt vatn. Stílhrein og fáguð vél sem er fyrir frostþurrkað kaffi (Instant) Einnig fáanleg með myntkerfi LED lýsing Auðveld í notkun b 34 – h 60 – d 44 Vélin opnast upp og er mesta hæð þegar hún er opin 85cm Fáanleg í metallic gráu eða hvít
  • Lirika Black er afar stílhrein baunavél sem er tilvalin fyrir lítil fyrirtæki. Vél sem gerir góðan espresso bolla ásamt því að bjóða upp á cappuccino og caffe latte með auðveldum hætti. Lirika Black er auðveld í notkun og meðhöndlun. Stór skjár með skýrum skilaboðum og táknum. Ketill í A flokki og keramik kvörn. vélin er með 2,5 L vatnshólfi og tekur 500 gr af baunum Korgskúffa tekur 15 skammta B:215 x H:381 x D:430 mm
  • Sjálfvirk espresso kaffivél. Þú þrýstir á einn hnapp og færð nýmalað kaffi beint í bollann. Hægt er að velja um mismunandi styrkleika á kaffinu og svo gefur hún frábæran cappuccino- og lattekaffibolla Hægt er að fá heitt vatn úr vélinni. Vélin hefur 4ltr. vatnstank sem lyft er af með einu handtaki. Það er líka hægt að beintengja hana við vatn. Öflug vél sem gerir flott kaffi. Getur gert 2 bolla í einu. 1kg baunahólf 1ltr dropahólf Ath. engin skuldbinding um lágmarkskaup á kaffi en kaffið er verslað hjá Kerfi. b x h x d) 334 x 574 x 452 mm
  • Aulika Sjálfvirk espresso kaffivél. Þú þrýstir á einn hnapp og færð nýmalað kaffi beint í bollann. Hægt er að velja um mismunandi styrkleika á kaffinu og svo gefur hún frábæran cappuccino- og lattekaffibolla Hægt er að fá heitt vatn úr vélinni. Vélin hefur 4ltr. vatnstank sem lyft er af með einu handtaki. Það er líka hægt að beintengja hana við vatn. Öflug vél sem gerir flott kaffi. Getur gert 2 bolla í einu. 1kg baunahólf 1ltr dropahólf Ath. engin skuldbinding um lágmarkskaup á kaffi en kaffið er verslað hjá Kerfi. Smelltu hér til að sjá video b x h x d) 334 x 574 x 452 mm
  • Gran Crema er mjög vönduð og stílhrein kaffivél sem gerir mjög góðan bolla. Crema er arftaki Royal Digital vélarinnar og er endurbætt útgáfa hennar. Ýmislegt hefur verið betrumbætt í þessari 2015 árgerð. Vert er að nefna að Crema hefur „A class“ orkuvottun. Sjálfvirk espresso kaffivél. Þú þrýstir á einn hnapp og færð nýmalað kaffi beint í bollann. Hægt er að velja um mismunandi styrkleika á kaffinu. Á vélinni er sjálfvirkur flóunarstútur. Hægt er að fá heitt vatn úr vélinni. Vélin hefur 2,2l. vatnstank sem lyft er af með einu handtaki. Hæð: 40cm – Breidd: 30cm, – Dýpt: 40cm Ath. engin skuldbinding um lágmarkskaup á kaffi en kaffið er verslað hjá Kerfi.
  • Sjálfvirk espressó kaffivél sem býður líka upp á blandaða kaffidrykki. T.d. latte, cappuccino, espressochoc, (swissmocca). Þessi vél getur gert espressóbolla sem jafnast á við það besta á kaffihúsum landsins. Hægt að fá hana með skáp sem getur aukið við korgruslatunnuna. Hún er beintengd við vatn. Hægt að fá kakó, espressó og allt að 10 drykki. 1kg baunahólf og stórt kakóhólf. (b x h x d) 393 x 695 x 508 mm Hægt að fá hana með skáp sem getur aukið við korgruslatunnuna og stækkað dropabakkann.