-
B20 vélin er tilvalin fyrir mikið annríki eins og sjúkrahús og staði þar sem þarf að afgreiða mikið kaffi á örskömmum tíma. Hún getur afgreitt 40 ltr í einu og dælt í gegnum sig 90ltr/klst. Hún er 14 mínútur með hvorn 20ltr kútinn fyrir sig. þessi vél er líka með heitavatnskrana og getur afkastað 20ltr/klst af heitu vatni. Kútana er hægt að færa frá vélinni. Rúmmál:1257x592x888mm Ath vélin notar 3ja fasa tengingu. -
Hitabrúsavél. Vélin er með dælu sem tryggir lágmarks hitatap við notkun. Kaffið helst sérstaklega heitt og ferskt klukkutímum saman. Hægt er að beintengja vélina við vatnslögn eða hella vatni beint á vélina. Afkastageta er 18L á klst. Tekur um 7 mín. að hella uppá 2,2l (einn brúsa) Hæð: 54,7cm - Breidd: 20,5cm, - Dýpt: 35,5cm -
Gaggia Concetto Cappuccino er ein flottasta og vandaðasta vélin frá Saeco/Gaggia. Þessi vél er notuð á mjög mörgum kaffihúsum með góðum árangri. Endingarmikil og notendavæn vél. Vélin flóar mjólkina sjálf og er með sjálfhreinsiútbúnað þannig að viðhald er lítið. Hún er með stóra korgskúffu og 2,1kg baunahólf. Getur gert tvo bolla í einu og er með 9 valmöguleika. Gefur bæði heitt vatn og svo mjólkurblandaða drykki eins og kaffi latte og cappuccino. Topp vél fyrir kröfuharða. Vélin beintengist við vatn og niðurfall. stærð :527 x 540 x 673mm -
Sjálfvirk kakó og kaffivél. Þrýstir á einn hnapp og færð ljúffengt kakó eða kaffi beint í bollann. Hægt er að velja um mismunandi styrkleika á kaffinu. Bolero er fyrir frostþurrkað kakó og kaffi. Hægt er að fá heitt soðið vatn úr vélinni. Beintengja þarf vélina við vatnslögn. Vélin hefur 3,4l. vatnstank 30l á klst. 9 sek. á bolla Hæð: 57,2cm - Breidd: 24,5cm, - Dýpt: 40cm