-
Kerfi notar eingöngu vatn úr vatnsbóli Hafnarfjarðar sem er í Kaldárbotnum. Þaðan liggur aðfærsluæð til bæjarins meðfram Kaldárselvegi um 6 km að lengd, síðan eftir stofnæðum og dreifilögnum sem flestar liggja í götum bæjarins. Fyrstu tildrög að vatnsveitu í bænum munu vera að Vatnsveitufélag Hafnarfjarðar og var stofnað 1904. Í fyrstu sóttu bæjarbúar vatn í vatnskrana, sem settir voru upp víðs vegar um bæinn. Síðar var farið að leiða vatn í hús. Kerfi er með öfluga og afkastamikla vatnslögn sem tengist beint í átöppunarvél fyrir vatnið. Vatnið er síðan margsíað, hreinsað og geislað með útfjólubláu ljósi til þess að drepa örverur ef þær eru einhverjar. NTU gildi í vatninu er vart mælanlegt sem þykir einstakt hjá vatnsveitum bæði hérlendis sem erlendis. Vatnsveita Hafnarfjarðar sér nú um vatnsöflun og dreifingu neysluvatns í Hafnarfirði. Vatn er leitt til bæjarins frá Kaldárbotnum. Núverandi aðveituæð er frá árinu 1950 og fullnægir hún enn vatnsþörf bæjarins. Á liðnum áratugum hafa verið boraðar fjölmargar rannsóknarborholur í nágrenni Hafnarfjarðar. Fyrstu holur voru vegna jarðhitaleitar og voru allar grunnar eða 60 - 100 m. Á síðasta áratug lét Vatnsveitan bora á sjötta tug rannsóknarhola til að kanna grunnvatn, þær dýpstu tæpa 90 m. Holurnar eru dreifðar um svæðið frá Helgafelli að Straumsvík.
-
Alvöru þykkni úr alvöru appelsínum. Náttúrleg vara án rotvarnaefna og litarefna. 50% þykkni sem blandast í hlutföllunum 1:12 til 1:14 Virkilega góður appelsínusafi sem er hitaður upp fyrir 80°C til að auka geymsluþol. Þá þarf ekki að nota rotvarnarefni. Þetta er fyrir þá sem gera kröfur um gæði og bragð.