-
Peter Larsen Ristretto kaffihylki er 100% endurvinnalegt og niðurbrjótanlegt hylki (compostible). Hylkið sjálft er búið til úr jurtatrefjum og kaffið er lífrænt. 100% arabicabaunir. Fyrir þá sem vilja sterkan, kraftmikinn espressóbolla. Hæg brennslan hámarkar bragðgæðin og gerir kaffið einstaklega bragðmikið og gefur gott og langvinnt eftirbragð.
-
Aromat Organic Direct er fairtrade og lífrænt ræktað úr 100% sérvöldum arabicabaunum. Kaffið er með bæði lífræna vottun (Evrópulaufblaðið) og fairtrade vottun. Þetta kaffi þarf ekki að geyma í frosti og geymist í 12 mánuði. Vélar sem nota þetta kaffi koma frá Bravilor og heita Bolero Turbo LV12. Kaffið blandast í hlutföllum 1:25- 1:35 sem þýðir að einn pakki getur dugað í allt að 600 bolla af ljúffengu kaffi. Bragðið er silkimjúkt og með frábæru eftirbragði.