Kerfi er fjölskyldurekið fyrirtæki sem leggur mikla áherslu á vandaða og persónulega þjónustu til viðskiptavina sinna, ásamt því að fylgjast vel með framþróun og vera samkeppnishæf á markaði.
Kaffivélar og vatnsvélar til leigu.
Með því að koma fyrir vatnskæli á aðgengilegum stað getur þú lagt þitt að mörkum til að vernda heilsu og auka vellíðan starfsmanna og gesta. Ísvatn sem er átappað hjá Kerfi er upprunnið úr Kaldárbotnum, köldustu og líklega hreinustu vatnsuppsprettu landsins. Til að Ísvatn haldi sínum einstöku gæðum og geymsluþol vatnsins verði sem best er það hreinsað með fullkomnum hreinsibúnaði fyrir átöppun. Gæði vatnsins eru því eins og þau gerast best. Við erum líka með kaffivélar og allt sem þú þarft fyrir kaffistofuna.
Við erum stolt af því að vera í hópi þeirra sem hlutu viðurkenninguna framúrskarandi fyrirtæki árið 2021 og 2022.
