Kaffi
Hvað er Kaffi Kaffi er koffínríkur drykkur sem gerður er úr brenndum baunum kaffirunnans og er yfirleitt borinn fram heitur eða ískaldur. Kaffi er ein algengasta verslunarvara heims, næst á eftir hráolíu. Heimsframleiðsla kaffis var 6,7 milljón tonn árlega 1998-2000. Langmesta framleiðslan fer fram í Brasilíu. Kaffirunninn er upprunninn í Eþíópíu og var fluttur þaðan til Jemen á miðöldum þar sem hafnarborgin Mokka varð helsta útflutningshöfn kaffis. Kaffi náði miklum vinsældum áArabíuskaganum og var flutt á markað í Evrópu á 16. öld af Hollenska Austur-Indíafélaginu og Breska Austur-Indíafélaginu. Það náði síðan mikilli útbreiðslu í Evrópu og Norður-Ameríku á17. öldinni. Bragð [...]